Segja ekki koma til greina að skila aröbum landi 11. janúar 2008 12:54
Harðlínumenn í Ísrael segja ekki koma til greina að skila landi sem þeir tóku af aröbum 1967. Bandaríkjaforseti segir það liðka fyrir friðarsamkomulagi Ísraela og Palestínumanna sem hann segir geta orðið áður en árið er úti. Tony Blair, sérlegur sendifulltrúi fjórveldanna í friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs, átti í gær fund með Bush Bandaríkjaforseta í Jerúsalem. Forsetinn kom til landsins helga í fyrradag og hefur átt fundi með Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Abbas, forseta Palestínumanna. Á blaðamannafundi í Jerúsalem í gær sagði Bush að Ísraelar yrðu að skila því landi Araba sem þeir hefðu hertekið í sex daga stríðinu 1967. Annars yrði ekki hægt að stofna lífvænlegt Palestínuríki. Hann sagði einnig mikilvægt að skoða það hvort rétt væri að greiða flóttamönnum Palestínumanna bætur. Hann sagðist einnig sannfærður um að Ísraelar og Palestínumenn myndu semja um frið áður en hann léti af embætti í janúar á næsta ári. Stjórnmálaskýrendur benda á að Bandaríkjaforseti hafi ekki fyrr verið jafn skýr og skorinorður í tali um deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs. Eftir blaðamannafundinn snæddi forsetinn kvöldverð með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og helstu ráðherrum í ríkisstjórn hans. Samkvæmt heimildum ísraelska blaðsins Jerusalem Post fengu Olmert og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, að sjá yfirlýsingu forsetans á fundum í fyrradag og í gær og var tekið mið af ábendingum og tillögum þeirra. Harðlínumenn í Ísrael eru uggandi vegna ummæla Bush og segja ekki koma til greina að skila landi. Nokkur hundruð þeirra mótmæltu yfirlýsingu forsetans í Jerúsalem í gærkvöldi. Heimsókn Bush til landsins helga lauk í morgun eftir að hann skoðaði helgistaði kristinna manna í Galíleu og einnig Yad Vashem, Helfararsafnið í Jerúsalem. Skömmu fyrir hádegið hélt forsetinn ferð sinni um Mið-Austurlönd áfram og fór til Kúvæt.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira