Lögreglan í Björgvin í Noregi hefur handtekið mann á sextugsaldri sem hún telur vera hinn svokallaða Vasamann sem talinn er versti kynferðisafbrotamaður landsins.
Hans hefur verið leitað í um þrjá áratugi og er hann grunaður um að hafa fróað sér fyrir framan á bilinu 300-400 unga drengi á þeim tíma. Maðurinn, sem sagður er fjölskyldufaður og vellauðugur, var handtekinn fyrir utan húsið sitt í Björgvin í morgun.
Eftir því sem fram kemur á vef norska blaðsins Verdens Gang mun norska lögreglan hafa komist á sporið í málinu eftir DNA-rannsókn á sýnum úr manninum og verður frekar greint frá málinu á blaðamannafundi í Noregi í dag.