Kínversk stjórnvöld múlbinda fréttamenn 8. janúar 2008 09:06
Frelsi fjölmiðla hefur verið nær óþekkt fyrirbæri í Kína frá því að kommúnistar tóku þar völdin um miðja síðustu öld. Stjórnvöld í Kína hafa vakandi auga með öllu sem birt er, sérstaklega í ríkisfjölmiðlunum. Þegar fréttamenn kínverska ríkissjónvarpsins mæta í vinnu og kveikja á tölvum sínum er það fyrsta sem birtist á skjánum skilaboð um hvað megi segja í fréttunum þann daginn, og oftast fylga með nákvæmar lýsingar á því hvernig eigi að segja frá fréttunum. Í nýlegri umfjöllun BBC um málið er greint frá þremur dæmum um hvernig fréttamenn eru múlbundnir í Kína. Heilbrigðismál eru vinsælt umræðuefni meðal almennings í Kína og er það talin ástæðan fyrir því að fréttamönnum var meinað að segja frá læknamistökum á sjúkrahúsi í Bejing sem kostuðu miðaldra konu lífið. Annað dæmið er að þeir sem stjórna fréttaflutningum í Kína voru í töluverðum vanda þegar Bhutto var myrt. Frétt var of stór til að hægt væri að þegja hana í hel og í staðinn fengu fréttamennirnir nákvæma forskrift um hvernig ætti að segja frá málinu. Ástæða þessa er talin að samskiptin milli Kína og Pakistan eru mjög náin í augnablikinu og kínversk stjórnvöld vildu ekki styggja stjórn Pakistan. Og í þriðja dæminu var fréttamönnum alfarið meinað að segja frá því að stjórnvöld hefðu bannað sýningar á nokkrum Hollywood myndum. Ástæðan var að öllum líkindum sú að á þeim tíma áttu Kínverjar í erjum við Bandaríkjamenn um viðskiptahætti.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira