Hillary Clinton táraðist í New Hampshire 8. janúar 2008 07:57
Forkosningarnar í New Hampshire eru í dag og það lítur allt út fyrir að demókratinn Barak Obama og repúblikaninn John McCain muni fara með sigur af hólmi Greinilegt er að kosningabaráttan hefur tekið mjög á Hillary Clinton og flestir fjölmiðlar í Bandaríkjunum greina frá því að hún hafi tárast í kaffiboði með sextán öðrum konum í gærdag. Hún var að ræða stefnu sína við konurnar er rödd hennar brast og hún táraðist í kjölfar spurningar um hvernig hún færi að þvi að standast álagið í kosningabaráttunni. Og það hefur vart bætt ástandið hjá Hillary að í gær var birt skoðanakönnun á landsvísu sem sýnir að Obama nýtur nú jafnmikils fylgis og hún eða 33%. Fyrir aðeins tveimur mánuðum mældist fylgi Obama 18% á landsvísu. Á einum stað í New hampshire, smábænum Dixville Notch, er búið að kjósa og atkvæði hafa verið talin. Innan við tuttugu kusu og athygli vekur að enginn demókrati kaus Hillary. Obama fékk flest atkvæði eða sjö talsins og John Edwards fékk 2 atkvæði. Hvað repúblikana varðar fékk John McCain fjögur atkvæði, Mitt Romney tvö og Rudy Guiliani eitt atkvæði.
Mest lesið „Þetta er innrás“ Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Fleiri fréttir Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Sjá meira