Enski boltinn

Arsenal 1-0 yfir gegn United

Samir Nasri skoraði fyrir Arsenal á móti Manchester United.
Samir Nasri skoraði fyrir Arsenal á móti Manchester United.

Samir Nasri skoraði eina mark fyrri hálfleiks í leik Arsenal og Manchester United á Emirates leikvanginum í London. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur og marktækifæri á báða bóga. Staðan í hálfleik er 1-0 fyrir Arsenal.

Wayne Rooney hafa verið mislagðar fætur í leiknum og hefur fengið tvö góð marktækifæri en misnotað þau. Mark Arsenal kom upp úr aukaspyrnu. Gefið var fyrir markið, Berbatov skallaði boltann frá og beint fyrir fætur Nasri. Hann þrumaði á markið og fyrsta mark leiksins var staðreynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×