Enski boltinn

Lausafjárkreppan hefur áhrif á Abramovich

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roman Abramovich, eigandi Chelsea.
Roman Abramovich, eigandi Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

Frank Arnesen segir að lausafjárkreppan hefur haft mikil áhrif á starfsemi Roman Abramovich, eiganda Chelsea. Félagið hafi þurft að skera niður kostnað.

Síðan að Abramovich keypti Chelsea árið 2003 hefur félagið eytt miklu í starfsemina, ekki síst í leikmannakaup en Arnesen er „yfirnjósnari" hjá Chelsea sem og yfirmaður unglingastarfssemi félagsins.

„Skipulagið er núna komið á hreint og hrun fjármálamarkaðarins hefur þýtt að Roman hefur neyðst til að stíga á bremsuna hvað útgjöld varðar. Hann hefur beðið okkur um að skera niður og höfum við gert það í miklum mæli hvað njósnara varðar sem og önnur útgjöld."

„Hins vegar erum við óðum að nálgast þann tímapunkt þar sem félagið geti rekið sig sjálft án peninga frá Roman. 80 prósent þess sem ég vildi koma á legg síðan ég kom til félagsins hefur verið hrundið í framkvæmd. Það er ekki aftur snúið nú."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×