Tottenham færði Liverpool fyrsta tapið 1. nóvember 2008 19:35 Leikmenn Tottenham fagna sjálfsmarki Jamie Carragher NordicPhotos/GettyImages
Tottenham varð í kvöld fyrsta liðið til að leggja Liverpool að velli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tottenham vann dramatískan 2-1 sigur í blálokin á leik sem var eign gestanna lengst af. Hollendingurinn Dirk Kuyt kom Liverpool yfir með þrumuskoti strax á þriðju mínútu leiksins og þannig var staðan allt þar til 20 mínútur voru eftir af leiknum. Þá skallaði varnarmaðurinn Jamie Carragher boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá David Bentley. Þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma var svo Bentley aftur á ferðinni. Hann átti fast skot að marki sem Reina í marki Liverpool náði að verja, en boltinn barst til Darren Bent sem lagði boltann fyrir Roman Pavlyuchenko sem renndi honum í netið. Liverpool var sem fyrr segir sterkari aðilinn í leiknum og höfnuðu tvö skot liðsins í markrammanum, en inn vildi boltinn ekki. Markvörður Tottenham, Heurelho Gomes var sem fyrr skrautlegur í meira lagi en sirkustilburðir hans kostuðu lið hans þó ekki mark að þessu sinni. Tottenham hefur því náð í sjö stig í leikjunum þremur síðan Harry Redknapp tók við liðinu. Rétt eins og gegn Arsenal á dögunum, var Tottenham yfirspilað á löngum köflum, en hafði heilladísirnar á sínu bandi - nokkuð sem ekki var um að tala í fyrstu átta leikjum tímabilsins. Tapið í dag þýddi að Liverpool náði ekki að endurheimta toppsætið í deildinni, en þar situr Chelsea nú með 26 stig líkt og þeir rauðu en með betri markatölu. Manchester United er í þriðja sætinu með 21 stig og Arsenal, Aston Villa og Hull hafa 20 stig. Villa á leik til góða. Tottenham náði að lyfta sér af botni deildarinnar með sigrinum í dag og hefur nú hlotið 9 stig líkt og Newcastle. Bolton er neðst með 8 stig.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira