26 þúsund börn deyja á dag af völdum auðlæknanlegra sjúkdóma 23. janúar 2008 13:15
Nærri tíu milljón börn deyja á ári hverju áður en þau ná fimm ára aldri - tuttugu og sex þúsund börn á dag. Banamein getur verið allt frá lungnabólgu til malaríu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Barnadauði er minnstur í sex löndum heims, þar á meðal á Íslandi. Í árlegri skýrslu Barnahjálparinanr um stöðu barna í heiminum segir að Ísland sé enn með lægstu tíðni barnadauða, það er dauða barna innan við fimm ára, í heiminum ásamt Andorra, Liechtenstein, San Marínó, Síngapúr og Svíþjóð. Dregið hafi úr barnadauða á Íslandi um fimmtíu og sjö prósent síðan 1990. Samtökin segja að nú mælist barnadauði um gjörvallan heiminn á ári í fyrsta sinn undir tíu milljónum, það er 9,7 milljónir barna. Það þýði samt að tuttugu og sex þúsund börn verði auðlæknandi sjúkdómum að bráð á degi hverjum. Áttatíu prósent þeirra í Afríku sunnan Sahara og Suður-Asíu. Þrátt fyrir framfaraspor í Afríku, Suður-Asíu og Miðausturlöndum bendi ekkert til þess að hægt verði að minnka barnadauða á ári hverju í fimm milljónir fyrir árið 2015 líkt og stefnt hafi verið að. Samtökin halda þó baráttunni áfram. Knattspyrnuhetjan David Beckham er velgjörðarsendiherra Barnahjálparinnar. Hann heimsótti börn á heilsugæslustöðvum í Síerra Leone í vikunni. Þar deyr fjórða hvert barn áður en það nær að verða fimm ára.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira