Erlent

Lottómiði flækir dómsmál í Bandaríkjunum

Sérkennileg lagaflækja er komin upp við dómstól í Maine í Bandaríkjunum. Lögreglan þar handtók fíkiniefnasala sem seldi metadone-töflur frá hótelherbergi sínu í bænum Ellsworth.

Meðal þess sem lögreglan lagði hald á var lottómiði með vinning upp á rúmlega 60 þúsund krónur. Lögreglan segir að lottómiðinn hafi verið keyptur fyrir ólöglegan hagnað af fíkniefnasölunni. Dópsalinn heldur því hins vegar fram að ómögulegt sé fyrir lögreglu að sanna slíkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×