Erlent

Tyrkir ráðast á Kúrda

Tyrkneskar herflugvélar á sýningu.
Tyrkneskar herflugvélar á sýningu. MYND/AP

Tyrkneskar orrustuþotur gerður árásir á stöðvar skæruliða kúrda í norðurhéruðum Íraks í morgun. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi látið lífið í árásunum.

Tyrkir hafa á undanförnum vikum gert árásir á skotmörk í Norður-Írak en þær aðgerðir njóta stuðnings Bandaríkjamanna sem hafa rýmt lofthelgina fyrir tyrknesku orrustuþoturnar. Þá hafa tyrkneskar hersveitir einnig farið yfir landamæri Tyrklands og Íraks til þess að ráðast gegn aðskilnaðarsinnum Kúrda. Með því segjast Tyrkir vera að svara árásum aðskilnaðarsinnanna í Tyrklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×