Pútín reiðubúinn í forsætisráðherrastólinn 17. desember 2007 16:33 Pútín og Medvedev hafa unnið saman í 17 ár. MYND/AP
Valdímír Pútín Rússlandsforseti sagðist í dag myndu setjast í stól forsætisráðherra ef náinn samstarfsmaður hans, Dmitrí Medvedev, fyrsti varaforsætisráðherra landsins, yrði kjörinn forseti í kosningum í mars á næsta ári. Medvedev hlaut í dag rússneska kosningu á flokksþingi Sameinaðs Rússlands og verður því frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum. Pútín hafði í síðustu viku lýst yfir stuðningi við Medvedev og er fastlega er búist við því að hann nái kjöri enda hefur Sameiða Rússland töglin og hagldirnar í rússneskum stjórnmálum. „Ef rússneska þjóðin velur Dmitrí Medvedev sem forseta er ég reiðubúinn til að fara fyrir ríkisstjórninni," sagði Pútín á flokksþinginu og hlóð lofi á Medvedev. Hið sama gerði Medvedev í ræðu sinni og sagðist myndu hafa verk Pútíns að leiðarljósi í embætti forseta. Stjórnmálaskýrendur telja að með þessum ráðahag haldi Pútín áfram miklum völdum í landinu þrátt fyrir að hverfa úr stóli forseta, en þar má hann aðeins sitja tvö kjörtímabil í röð.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira