Talibanar hraktir á brott frá Musa Qala 10. desember 2007 13:51 Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hitti breska hermenn í Bastion-herbúðunum í Afganistan í dag. MYND/AP
Afganski herinn náði í dag með aðstoð herja Atlantshafsbandalagsins að hrekja skæruliða talibana úr bænum Musa Qala í Helmand-héraði. Talibanar hafa að undanförnu ráðið lögum og lofum í bænum Herlið hófu á föstudag árás á talibana í borginni með það fyrir augum að ná aftur stjórn þar en talibanar höfðu tekið völdin eftir að breski herinn fól öldungum í bænum valdataumana í febrúar. Fram kemur á vef BBC að bærinn hafi kjölfarið orðið miðstöð fíkniefnaviðskipta í Afganistan. Skæruliðar talibana munu hafa flúið til fjalla til þess að ná vopnum sínum og er búist við að þeir muni svara fyrir sig á næstunni. Breskir hermenn munu að líkindum koma upp herstöð í bænum en það verður hins vegar í höndum afganskra sveita að hafa forystu um að verja bæinn. Sigurinn í Helmand vannst á sama tíma og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, kom til Afganistans þar sem hann fundaði með Hamid Karzai, forseta landsins, og hitti breska hermenn í Bastion-búðunum í Helmand. Hrósaði Brown hermönnunum fyrir framgöngu þeirra í Musa Qala og vonaðist til þess að NATO-hersveitirnar gætu ásamt afgönskum sveitum ráðið niðurlögum talibana og komið á friði í Afganistan
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Innlent Fleiri fréttir Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Sjá meira