Skattar lækkaðir og kosið um evruna 22. nóvember 2007 15:55 MYND/Reuters
Ný ríkisstjórn Danmerkur hyggst lækka tekjuskatta umtalsvert og þá á að kjósa um evruna. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Speglasalnum í forsætisráðuneyti Danmerkur í dag þar sem ný ríkisstjórn Venstre Íhaldsflokksins, Danska þjóðarflokksins og Nýja bandalagsins kynnti stefnumál sín. „Það á að borga sig að vinna og þess vegna viljum við lækka skatttana," sagði Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, á blaðamannafundinum. Þá greindi hann einnig frá að skattaafsláttur yrði aukinn til þess að styðja við umhverfisvernd. Til stendur að nefnd skoði það hvernig hægt sé að lækka skatta þannig að það verði réttlátt gagnvart sem flestum og innan ramma efnahagslífsins. Á nefndin að skila tillögum í byrjun árs 2009. Nokkrar deilur hafa verið um skattalækkanir í landinu og hefur Danski þjóðarflokkurinn verið andvígur hugmyndum sem fram hafa komið. Með nefndinni á að reyna að ná sátt um skattalækkanirnar. Þá sagði Rasmussen að Danir þyrftu að taka afstöðu til þeirra fjögurra undanþága sem Danir hafa fengið frá Evrópusamstarfinu en þeir fengu aðild að ESB án þess að taka þátt í samvinnu á nokkrum sviðum. Meðal þeirra eru aðild að myntbandalaginu og þar með evrunni og aðild að varnarsamstarfi ESB-ríkjanna. Ekki liggur hins vegar fyrir hvernær kosið verður um undanþágurnar og hvort kosið verði um þær allar í einu.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Sjá meira