Opinberum byggingum og verslunum lokað á Gaza Guðjón Helgason skrifar 13. nóvember 2007 12:22
Skólum, opinberum byggingum og verslunum var lokað í Gazaborg í morgun. Minnst sex týndu lífi í skotbardaga þar í gær þegar Fatah-liðar minntust þess að þrjú ár voru liðin frá dauða Arafats. Átökin eru þau verstu frá því Hamas-samtökin töku völdin á Gaza-svæðinu í júní. Þrjú ár voru í gær frá því Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, lést. Stuðningsmenn Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas forseta komu saman í Gaza-borg til að minnast þess. Fjölmennt var í miðborginni - tvö hundruð og fimmtíu þúsund Fatah-liðar - og höfðu ekki jafnmargir lýst stuðningi við Fatah á Gaza-svæðinu frá því Hamas-liðar tóku þar völdin í blóðugum átökum síðasta sumar. Öryggissveitir Hamas-samtakanna skutu á mannfjöldann að sögn til að svara grjótkasti. Auk þess hafa Fatah-liðar einnig skotið á mannfjöldann. Áður en yfir lauk láu minnst sjö í valnum og áttatíu og fimm særðir. Vitni segja Hamas-liða hafa handtekið fjölmarga af þeim sem tóku þátt í göngunni. Í morgun var þögnin ærandi í Gaza-borg. Skólar voru lokaðir, einnig opinberar stofnanir og verslanir. Abbas hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg og segir aðgerðir Hamas-liðar viðurstyggilegan glæp. Flaggað er í hálfa stöng víða á palestínsku landsvæði. Sérfræðingar segja atbuðri gærdagsins til marks um vaxandi áhrif Fatah og örvæntingu Hamas-liða. Fjöldi Fatah-liða á götum Gaza-borgar styrki umboð Abbas í friðarviðræðum við Ísraela í Bandaríkjunum síðar í þessum mánuði.
Mest lesið Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris Innlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Fleiri fréttir Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Sjá meira