Hóta að vísa Pakistan úr bandalagi samveldisríkja 12. nóvember 2007 22:05 Pervez Musharraf, forseti Pakistans, mætir miklum þrýstingi þessi dægrin.
Utanríkisráðherrar innan bandalags bresku samveldisríkjanna hafa gefið Pervez Musharraf, forseta Pakistans, tíu daga til að afnema neyðarlög í landinu ellegar verður landinu vísað úr breska samveldinu. Þetta var ákveðið á aukafundi ráðherranna í Lundúnum í kvöld. Fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins að ráðherrarnir krefjist þess einnig að Musharraf hætti sem yfirmaður pakistanska hersins og sleppi pólitískum föngum sem hnepptir hafa verið í varðhald á síðustu dögum. Musharraf lýsti yfir neyðarástandi í landinu fyrir rúmri viku og nam stjórnarskrána úr gildi en hefur mætt harðri andstöðu vegna aðgerðanna, þar á meðal frá Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Musharraf hefur hins vegar lofað að þingkosningar verði haldnar í janúar eins og til stóð en það hefur ekki þótt nóg. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að sumir ráðherrarnir á fundinum í kvöld hafi viljað vísa Pakistan strax úr bandalagi samveldisríkjanna en aðrir hafi ekki viljað gera neitt. Niðurstaðan hafi verið sú að gefa Musharraf frest til 22. nóvember að taka stjórnarskrána í gagnið aftur og afnema allar hömlur á starfsemi fjölmiðla. Þess má geta að Pakistan var vísað úr bandalaginu árið 1999 þegar Musharraf hrifsaði völdin í sínar hendur í landinu. Það var hins vegar tekið aftur inn í bandalagið árið 2004.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Sjá meira