Bhutto til Islamabad en ræðir ekki við Musharraf 6. nóvember 2007 12:59 MYND/AP
Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, fór til Islamabad í morgun en sagðist við brottförina ekki mundu ræða við Musharraf forseta, sem nú ríkir í skjóli neyðarlaga. Hún segist þvert á móti ætla að ræða við stjórnarandstæðinga og þvertekur fyrir að hún kunni að taka sæti í bráðabirgðastjórn. Lögregla í Pakistan hélt áfram að handtaka lögmenn í dag. Þó að stjórnvöld í Pakistan hafi í gær tilkynnt að kosningar verði haldnar á tilsettum tíma í janúar þá er ekkert lát á aðgerðum til að bæla niður alla andstöðu við Musharraf forseta. Lögmenn halda áfram að mótmæla og lögregla tekur á móti þeim af hörku. Lögreglumenn börðu einn lögmann með barefli og spörkuðu í hann á meðan hann var settur inn í fangabíl. Ekki er ljóst hvernig Musharraf forseti ætlar að koma sér út úr þeirri klípu sem hann er í. Hann réðst gegn hæstarétti um það bil sem rétturinn var að fara að úrskurða hvort endurkjör hans í embætti forseta hefði verið löglegt. Nú hefur hann látið undan þrýstingi Bandaríkjamanna um að halda þingkosningar um miðjan janúar, eins og ráðgert hafði verið. Forseti hæstaréttar er í stofufangelsi en hann ávarpaði samkomu lögfræðinga um síma og sagði að Musharraf hefði rifið stjórnarskrána í tætlur og nú væri kominn tími til að færa fórnir.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Bílvelta á Hringbraut Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent