Boðið upp á námskeið við tölvufíkn 1. febrúar 2007 12:02
Fjórtán ára unglingur trylltist í gærkvöldi þegar foreldrar hans létu aftengja Netið svo hann gæti ekki haldið áfram í tölvuleik, sem hafði heltekið hann. Hafin eru námskeið í Reykjavík til að koma vaxandi fjölda tölvufíkla til hjálpar. Foreldrar piltsins, sem búa í Hafnarfirði, kölluðu á lögregluna á höfuðborgarsvæðinu þegar þeir fengu ekki við neitt ráðið og unglingurinn gekk berserksgang og braut og bramlaði innanstokksmuni. Lögregla þurfti að brjóta upp hurð til að komast að piltinum og róa hann niður. Ekki er langt síðan að tveir unglingar trylltust af svipuðum ástæðum þannig að foreldrar þeirra urðu að kalla á lögreglu. Alvarlegum tilvikum af þessu tagi fer fjölgandi að sögn lögreglu. Þetta er ekki séríslenskt fyrirbæri því BBC greinir frá því að nýverið hafi verið opnuð meðferðarstöð fyrir tölvufíkla í Hollandi, líklega sú fyrsta í heiminum. Og hér heima sitja menn heldur ekki aðgerðarlausir því Þorsteinn Kristjánsson sérkennari hóf fyrir mánuði, upp á sitt einsdæmi, að bjóða unglingum upp á námskeið um vandann. Hann segir að ótrúlega margir krakkar í níundu og tíundu bekkjum kannist við einkenni hjá sjálfum sér eða einhverjum sem þeir þekkja. Þeir sem lengst séu gengnir bregðist jafnharkalega við því að missa Netið og eiturlyfjasjúklingar ef eitrið er tekið af þeim. Við fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum.
Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Fleiri fréttir Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Sjá meira