Afríkuleiðtogar hafna viðskiptasamningi við ESB Þórir Guðmundsson skrifar 9. desember 2007 18:54
Óvissa er um framtíð viðskipta milli Evrópu og Afríku eftir að flestir leiðtogar Afríkuríkja höfnuðu í dag tilboði Evrópusambandsins um nýjan viðskiptasamning. Þetta var annar leiðtogafundur Afríku og Evrópu í sögunni - og vissulega má segja að sú staðreynd að hann var haldinn sýni vel sögulega tengingu heimsálfanna tveggja. Og þrátt fyrir nærveru Roberts Mugabe frá Zimbabwe - og fjarveru Gordons Brown frá Bretlandi - þá var gott hljóð í leiðtogunum sjötíu. En Evrópusambandið hafði vonast til að ná samkomulagi um tollamál, samkomulagi sem var ætlað að taka við af núgildandi samningum sem Alþjóðaviðskiptastofnunin hefur úrskurðað ólöglega. Það tókst ekki. Leiðtogar Afríku bentu evrópskum kollegum sínum á að Kínverjar væru að fjárfesta í Afríku og þeir tvínónuðu ekki við hlutina heldur keyptu, seldu og fjárfestu eins og þeir ættu lífið að leysa. Gömlu nýlenduveldin yrðu að standa sig í samkeppninni. Núgildandi viðskiptasamningar renna út um áramótin. Evrópusambandið ætlar ekki að hækka tolla þegar þeir ganga úr gildi - en leiðtogar þess bentu á í dag að náist ekki samningar fyrir þann tíma þá sé óvíst að sambandið komist upp með það - gagnvart alþjóðlegum viðskiptareglum - að vera með lægri tolla á vörur frá Afríku heldur en frá öðrum.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Sjá meira