Varað við bjartsýni Guðjón Helgason skrifar 23. nóvember 2007 19:00 Saud al-Faisal prins, utanríkisráðherra Sádí Arabíu, og Amr Moussa, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, á fundinum í höfuðstöðvum bandalagsins í Kaíró í Egyptalandi í dag. MYND/AP
Ísraelar og Palestínumenn hafa ekki náð samkomulagi um dagskrá friðarráðstefnu í Maryland í Bandaríkjunum í næstu viku. Ríki Arababandalagsins boðuðu flest komu sína í dag og allt er nú reynt til að tryggja að Sýrlendingar mæti. Friðarráðstefnan Ísraela og Palestínumanna verður haldin í Annapoli í Maryland-ríki í Bandaríkjunum og hefst á þriðjudaginn. Fulltrúar Arabaríkja komu saman til fundar í höfuðstöðvum Arababandalagsins í Kaíró í Egyptalandi í dag til að ræða ráðstefnuna og hvort rétt væri að mæta. Egyptar og Jórdanar höfðu þegar boðað komu sína auk nokkurra annarra Arabaríkja. Eftir fundinn var tilkynnt um samstöðu Arabaríkja í málinu og að Sádí Arabar ætluðu að senda fulltrúa. Sýrlendingar hafa sagt að þeir taki ekki þátt ef landtaka Ísrela á Gólan-hæðum 1967 verði ekki til umræðu. Því var neitað þar til síðdegis í dag þegar Bandaríkjamenn tilkynntu að hún yrði á dagskrá. Stjórnvöld í Damaskus hafa þó ekki gefið upp hvort þau sendi fulltrúa. Varað er við bjartsýni fyrir ráðstefnuna. Oft hafi hyllt undir friðarsamkomulag sem síðan hafi orðið að engu. Ráðstefna sem þessi var síðast haldin í Madrídarborg á Spáni í október 1991. Niðurstaðan var engin því Ísraelar neituðu að ræða beint við Frelsissamtök Palestínumanna, PLO. Óslóarsamkomulagið boðaði breytta tíma og var innsiglað var með handabandi á lóð Hvíta hússins í Washington tæpum tveimur árum síðar. Það varð að engu vegna morða og óaldar. Ísrelum og Palestínumönnum gengur illa að semja dagskrá fyrir fundinn í Annapolis og það er ekki talið boði gott.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira