Við höfum staðið í stríði við jörðina 10. desember 2007 14:48 Al Gore og Rajenda Pachauri tóku í dag við friðarverðlaunum Nóbels fyrir baráttu sína í loftlagsmálum. MYND/AP
Við höfum kastað á glæ miklum tíma og í raun staðið í stríði við jörðina, sagði Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels ásamt Rajenda Pachauri, yfirmanni loftlagsráðs Sameinuðu þjóðanna, í Osló í dag. Gore sagði tíma til kominn að vinna við framtíðina hæfist og eggjaði þannig þjóðir heims til þess að ná samkomulagi um nýjan loftlagssáttmála í stað Kyoto-bókunarinnar sem rennur úr árið 2012. Gore sagð enn fremur í ræðu sinni þegar að nú væri tími til kominn að bretta upp ermarnar í loftlagsmálum. „Við höfum allt sem við þurfum nema pólitískan vilja og hann endurnýjanleg auðlind. Endurnýjum hana saman," sagði Gore. Pachauri sagði í ræðu sinni í Osló að það væri mikill heiður að fá friðarverðlaun Nóbels og þakkaði samstarfsmönnum sínum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þá sagði hann hlýnun lofthjúpsins vegar ótvíræða og hnattræna hlýnun síðustu 50 ára mætti að mestu rekja til vaxandi gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Al Gore sagði fyrr í dag hann hefði árangurslaust reynt að fá Bush forseta og stjórn hans til að samþykkja Kyoto-bókunina. Ekki skipti máli hvort repúblikanar eða demókratar fari með sigur af hólmi í forsetakosningum í Bandaríkjunum á næsta ári - næsti forseti Bandaríkjanna muni breyta afstöðu landsins frá því sem nú er. Því sé líklegt að Bandaríkin muni í náinni framtíð hafa uppbyggilegri afstöðu til loftslagsmála heldur en nú.
Mest lesið Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Fúlsaði við þriggja forseta fundi Erlent „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Innlent Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Innlent Fleiri fréttir Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent