Ekkert gefið upp um hvenær neyðarlögum verður aflétt 11. nóvember 2007 10:01
Pervez Musharraf, forseti Pakistans, ætlar að boða til almennra kosninga fyrir 9. janúar næstkomandi. Hann vill þó ekkert gefa upp um hvenær neyðarlögunum verður aflétt. Musarraf boðaði í morgun til fyrsta fréttamannafundarins síðan að neyðarlög tóku gildi í landinu fyrir rúmri viku. Andstæðingar forsetans hafa mótmælt lögunum og ítrekað hefur komið til átaka milli þeirra og lögreglunnar undanfarið. Á fundinum í morgun tilkynnti Musharraf að boðað yrði til almennra kosninga fyrir 9. janúar á næsta ári og að staðið yrði við ákvörðun um að leysa upp þingið í næstu viku. Sú ákvörðun forsetans, að leysa upp þingið, hefur verið harðlega gagnrýnd. Musharraf vildi ekkert segja til um hvenær neyðarlögunum verði aflétt en sagði að hann stæði fast við áform sín um að sverja forsetaeiðinn sem almennur borgari og láta af stöðu sinni sem æðsti yfirmaður pakistanska hersins. Lögreglan hefur handtekið fjölmarga mótmælendur undanfarið, sjónvarpsstöðvum hefur verið lokað og erlendum fréttamönnum vísað úr landi svo eitthvað sé nefnt. Allt gefur þetta andstæðingum Musarrafs tilefni til gagnrýni og áskana um einræðislega tilburði. Musharraf er undir miklum þrýstingi bæði frá andstæðingum sínum og vestrænum bandamönnum að tryggja lýðræði í landinu. Í morgun hélt Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra og einn helsti andstæðingur Musharraf, frá Islamabad til Lahore þar sem fjöldamótmæli eru áformuð á þriðjudaginn. Krafa Bhutto og stuðningsmanna hennar er að neyðarlögin verði felld úr gildi.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Segist saklaus Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Fleiri fréttir Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Sjá meira