Nemendur Jokela-skólans snúa aftur í tíma 12. nóvember 2007 17:13
Nemendur í Jokela-menntaskólanum í bænum Tuusula í Finnlandi sneru aftur í tíma í dag, fimm dögum eftir að nemandi í skólanum, Pekka-Eric Auvinen, gekk þar berskerksgang og myrti átta og særði tólf manns. Hann svipti sig svo lífi eftir árásina. Kennsla fór þó ekki fram í skólanum í dag því skólabyggingin er enn lokuð þar sem lögregla hefur ekki lokið vettvangsrannsókn. Huvudstadsbladet finnska greinir frá því að lögregla verði líklega nokkrar vikur að ljúka henni enda skólabyggingin stór. Alls hefur lögreglan rætt við á fjórða hundrað manns vegna málsins og á enn eftir að ræða við nokkurn fjölda. Með þessum yfirheyrslum hefur lögregla fengið skýrari sýn á atburðarásina daginn örlagaríka. Þannig segja vitni að Auvinen hafi hvatt til byltingar og til þess að eignum skólans yrði rústað um leið og hann skaut af byssu sinni. Þykir þetta benda til þess að hann hafi ekki litið á alla nemendur skólans sem andstæðinga sína. Þá mun hann hafa beint byssunni að nokkrum manneksjum án þess að skjóta. Þá rannsakar lögreglan myndband sem Auvinen setti á myndbandaveituna YouTube skömmu áður en hann lét til skarar skríða. Rannsókn lögreglu hefur þegar leitt í ljós að Auvinen skrifaði sjálfsmorðsbréf sem hann skildi eftir strax á mánudaginn í síðustu viku, en í því kemur fram að hann ætli að myrða sem flesta. Réttarlæknisfræðileg rannsókn á líki Auvinens hefst svo á morgun.
Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fleiri fréttir Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Sjá meira