Hreinar nærbuxur mikilvæg lexía þingmanns Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 13. desember 2007 11:24 Nigel Scullion í ræðupúlti á ástralska þinginu. MYND/nigelscullion.com
Ástralskur þingmaður þakkar íslenskum hvalveiðimönnum einn dýrmætasta lærdóm lífs síns, að vera alltaf í hreinum nærbuxum og leyfa engum að handjárna sig við staur. Nigel Scullion er nýkjörinn varaformaður Þjóðarflokksins í Ástralíu sem vann sigur í þingkosningunum fyrir skemmstu. Hann var handjárnaður við staur hálfnakinn eftir kvöldstund með íslenskum hvalveiðimönnum og kanadískum krabbaveiðimönnum á nektarstað í St. Pétursborg í Rússlandi fyrir 10 árum síðan. Í breska dagblaðinu Daily Telegraph kemur fram að Scullion hafi verið í forsvari fyrir nefnd á ráðstefnu í borginni árið 1998, þremur árum áður en hann varð þingmaður. „Þetta var frábært kvöld. Ef þér verður einhverntíman boðið að drekka með íslenskum hvalveiðimönnum og kanadískum krabbaveiðimönnum, ekki hika við það," sagði hann í viðtali við blaðið. Skemmtunin tók óvænt enda þegar slagsmál brutust út á klúbbnum milli rússneskra veiðimanna og annarra gesta. Þá flýði þingmaðurinn og segist hafa verið í öllum fötunum á þeim tímapunkti. Það fylgdi hins vegar ekki sögunni hvernig það atvikaðist að hann var handjárnaður við staurinn og tapaði buxunum. Scullion er giftur en segist hafa beðið eiginkonu sína afsökunar á athæfinu símleiðis næsta dag. Hann hafi þó skemmt sér mjög vel um kvöldið þrátt fyrir að týna buxunum. „Þetta var fyrir tíu árum og ég var sjómaður," sagði hann og bætti við; „Allir eiga einhverjar litríkar sögur úr fortíðinni." Atvikið var dregið fram í dagsljósið eftir að svipað mál tengt leiðtoga flokksins og forsætisráðherra, Kevin Rudd, var til umfjöllunar í aðdraganda kosninganna og varð óvænt til þess að auka vinsældir hans í kosningabaráttunni.Scullion sagðist hissa á því að saga hans hefði ekki lekið í fjölmiðla fyrr.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Fleiri fréttir Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sjá meira