Skorinn upp á höfði í stað hnés Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 8. nóvember 2007 13:28 MYND/Getty Images
Emanuel Didas sem lagður var inn á sjúkrahús í Tansaníu eftir mótorhjólaslys og beið eftir hnéuppskurði liggur nú meðvitundarlaus á gjörgæslu eftir uppskurð á höfði. Spítalinn gerði þessi afdrifaríku mistök eftir að nöfnum tveggja sjúklinga var ruglað saman, en þeir bera sama fornafn. Emmanuel Mgaya, sem er krónískur mígrenissjúklingur, er hins vegar á batavegi eftir óvæntan hnéuppskurð. Reiðir aðstandendur krefjast nú rannsóknar á atvikinu við Muhimbili sjúkrahúsið í höfuðborginni Dar es Salaam. Læknar og yfirmenn hafa ekki viljað tjá sig um málið sem kom upp í síðustu viku og hefur ekki verið tilkynnt til yfirvalda. Heilbrigðisráðuneytið og félagsyfirvöld segjast hafa fyrirskipað rannsókn á málinu. "Þetta er vanræksla í starfi. Læknir hlýtur að vita að hné er töluvert langt frá höfði," sagði einn ættingi Didas við BBC. Fjölskyldan sem vakir yfir Didas á gjörgæsludeildinni er í sjokki og hefur ekki fengið nánari upplýsingar um þessa óvæntu höfuðaðgerð. "Læknarnir hafa ekki einu sinni sagt okkur að Emmanuel hafi verið skorinn upp á höfði." Ættingjar Emmanuel Mgaya eru miður sín. Emmanuel er nemandi í menntaskóla og hafði fengið mikla höfuðverki við próflestur þegar hann var lagður inn á spítalann.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Sjá meira