Skaut hvert fórnarlamb mörgum sinnum Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 8. nóvember 2007 15:28 Nemendur hafa kveikt á kertum víða við Jokela menntaskólann í Tuusula þar sem morðin áttu sér stað. MYND/AFP
Finnska lögreglan sagði á blaðamannafundi í dag að fjöldamorðinginn sem varð átta að bana í menntaskóla í Tuusula í gær hafi ætlað að drepa eins marga og hann gæti. Hann hafi skotið hvert fórnarlamb mörgum sinnum, í einu fórnarlambanna fundust 20 byssukúlur. Það sýni hversu brjálaður og ofbeldisfullur Pekka-Eric Auvinen hafi verið. Bryndís Hólm fréttaritari Stöðvar 2 er á staðnum. Hún segir að pilturinn hafi farið með 500 byssukúlur í skólann en notað um 70 til að myrða skólastýruna, skólahjúkrunarfræðing og sex samnemendur. Umtalað sé í bænum að það hafi verið skólastýrunni að þakka að pilturinn myrti ekki fleiri. Hún hafi gert viðvart og talað í hátalarakerfi þar sem hún sagði nemendum að flýja út um glugga eða læsa að sér. Hún sé hin raunverulega hetja þessara sorglegu atburða. Bryndís hefur talað við fjölda nemenda við skólann sem verður lokaður fram á mánudag. Hún segir marga kvíða því að fara í skólann aftur; "Sú staðreynd að þarna hafi verið framin fjöldamorð er ofarlega í huga þeirra. Hugsunin um að fólk sem þeir þekki hafi verið drepið í ákveðnum skólastofum er yfirþyrmandi." Venjulegt líf muni því fara hægt af stað í Tuusula.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Sjá meira