Mikill viðbúnaður í París vegna hugsanlegra óeirða 27. nóvember 2007 21:33 Lögreglumenn gráir fyrir járnum í Villiers-le-Bel í kvöld. MYND/AP
Lögreglan í París verður með mikinn viðbúnað í kvöld þar sem óttast er að til óeirða komi í einu af úthverfum borgarinnar þriðja kvöldið í röð. Forsætisráðherrann Francois Fillon hefur kallað ungmennin sem staðið hafa fyrir óeirðunum glæpamenn. Um áttatíu lögrglumenn meiddust í óeirðum í hverfinu Villiers-le-Bel í París í gærkvöld og nótt og þá kveiktu ungmennin í fjölmörgum bílum. Segir lögregla að ungmennin hafi notað byssur, grjót og bensínsprengjur gegn lögreglunni en hún svaraði með táragasi og gúmmíkúlum. Fregnir hafa borist af því að óeirðirnar séu að breiðast út til annarra borga Frakklands og þannig var kveikt í bókasafni í borginni Toulouse í kvöld. Óeirðirnar má rekja til dauða tveggja ungra manna en þeir léstust í árekstri mótorhjóls og lögreglubíls. Saka ungmennin og ættingjar drengjanna lögregluna um að hafa keyrt inn í mótorhjólið en því hefur lögreglan hafnað og segir piltana hafa verið á óskráðu hjóli á miklum hraða og án hjálma. Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, heimsótti Villiers-le-Bel í dag og þakkaði lögreglu fyrir störfin. ,,Þeir sem skjóta á lögregluna eru glæpamenn og tekið verður á þeim sem slíkum," sagði Fillon. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur boðað til neyðarfundar hjá ríkisstjórninni á morgun vegna málsins en þá snýr hann aftur úr heimsókn til Kína. Óeirðirnar nú þykja minna á uppþot sem urðu í hverfinu Clichy-sous-Bois árið 2005. Þau urðu í kjölfar þess að tveir piltar létust á flótta undan lögreglu. Stóðu óreirðirnar þá í þrjár vikur. Yfir 10 þúsund bílar voru brenndir og um 300 byggingar skemmdust í árásum með bensínsprengjum.
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent John Alford fannst látinn í fangelsi Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent Fleiri fréttir John Alford fannst látinn í fangelsi Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Sjá meira