Sextíu franskir lögreglumenn slösuðust í átökum Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. nóvember 2007 07:49 Lögreglumenn reyna að hafa hemil á óeirðarseggjum í París.
Til átaka kom á milli franskra ungmenna og lögreglunnar í úthverfi Parísar aðra nóttina í röð. Lögreglan er sökuð um að bera ábyrgð á því að tvö ungmenni létust þegar vélhjól sem þau óku skall saman við lögreglubíl um helgina. Franska lögreglan segir að fleiri en sextíu lögreglumenn hafi slasast í átökunum í nótt. Kveikt var í fjölmörgum bifreiðum, þar á meðal lögreglubíl, og heimildir herma að skotið hafi verið að lögreglumönnum. Lögreglan skaut táragasi og gúmmíkúlum að óeirðarseggjum til að hafa hemil á þeim. Í óeirðunum í fyrrinótt var kveikt í að minnsta kosti 30 bifreiðum og nokkrum byggingum, þar á meðal lögreglustöð. Þá slösuðust tuttugu og sex lögreglu- og slökkviliðsmenn og níu voru handteknir. Ungmennin segja lögregluna bera ábyrgð á vélhjólaslysinu og saksóknari mun ákæra ökumann lögreglubílsins fyrir manndráp. Lögreglan segir hins vegar að vélhjólið hafi verið á of miklum hraða, það hafi ekki verið skráð sem götuhjól og að ungmennin sem létust hafi ekki verið með hjálma og hundsað umferðarreglur. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hvetur ungmennin til að sýna stillingu og vill láta dómstóla um að úrskurða hver beri ábyrgð á því að ungmennin létust
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Sjá meira