Hershöfðingi í her Líbana ráðinn af dögum 12. desember 2007 13:59 Frá vettvangi tilræðisins í morgun. MYND/AP
Háttsettur maður í líbanska hernum var ráðinn af dögum í sprengjutilræði í bænum Baabda í útjaðri Beirút í morgun. Talið er að hershöfðinginn Francois al-Hajj hafi verið á leið heiman frá sér til vinnu og að sprengja hafi sprungið nálægt bíl hans þegar hann átti leið um Baabda. Al-Hajj hafði stjórnað aðgerðum líbanska hersins í baráttu við íslamska uppreisnarmenn í Nahr- al-Bared flóttamannabúðunum fyrr á árinu og talið var líklegt að hann yrði æðsti yfirmaður hersins ef Michel Suleiman hershöfðingi yrði gerður að forseta. Stjórnarkreppa er í Líbanon og hefur kjöri forseta landsins ítrekað verið frestað vegna þess að meirihlutinn á þingi, sem er hallur undir Vesturlönd, og stjórnarandstaðan, sem hefur tengsl við stjórnvöld í Sýrlandi, geta ekki komið sér saman um nýja ríkisstjórn. Þrír aðrir létust í tilræðinu í morgun en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á því. Fjölmargir háttsettir menn hafa verið drepnir í tilræðum í Líbanon á undanförnum misserum, en flestir þeirra hafa andæft afskiptum Sýrlandsstjórnar af innanríkismálum í Líbanon. Talsmaður Bandaríkjaforseta fordæmdi tilræðið í morgun og sagði að Bush myndi áfram styðja líbönsku þjóðina í baráttuna við þá sem reyndu að grafa undan öryggi og frelsi í landinu.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira