Flokkur Khaders gæti skipt sköpum í Danmörku 6. nóvember 2007 19:16 Naser Khader.
Einn umtalaðasti stjórnmálamaður Danmerkur hefur verið í fylgd lífvarða á vegum dönsku leyniþjónustunnar í tvö ár, eftir aðkomu sína að Múhameðsdeilunni. Í dag er hann formaður nýs stjórnmálaflokks sem gæti skipt sköpum í þingkosningunum þrettánda nóvember næstkomandi. Sighvatur Jónsson hitti Naser Khader í Danmörku. Naser Khader - formaður Nýja bandalagsins flutti til Danmerkur ellefu ára og hefur búið hér í 33 ár. „Ég fékk tungumálakennslu í tvö ár og fór svo í almennan danskan skóla í 8. bekk. Í framhaldi tók ég stúdentspróf og meistaragráðu í stjórnmálafræði frá Kaupmannahafnarháskóla." Stjórnmálaferill Khaders hófst með inngöngu í flokk róttækra vinstrimanna 1984. Þaðan gekk hann út í sumar og stofnaði Nýja bandalagið, miðjuflokk sem á að brúa bilið milli svokallaðra vinstri og hægri blokka í dönskum stjórnmálum. „Mér finnst blokkapólitíkin ekki dönsk. Það er meira í takt við danska hefð að forsætisráðherrann þurfi að hafa fyrir því að fá meirihluta í ýmsum málum. Þetta hefur verið alltof þægilegt hjá forsætisráðherranum síðustu 6 ár," segir Khader. „Mín skoðun er sú að önnur eins bylting hafi ekki sést frá því í upphafi áttunda áratugarins," segir Anders Samuelsen - meðstofnandi Nýja bandalagsins, aðspurður hvort segja megi að Nýja bandalagið hafi breytt hinu pólitíska landslagi í Danmörku. „Margir fjármálasérfræðingar eru þeirrar skoðunar að hátekjuskattur geti hindrað farsæla efnahagsþróun," segir Khader, en Nýja bandalagið vill afnema hátekjuskatt. Í Múhameðsdeilunni fyrir tveimur árum hvatti Khader aðra múslima til að sýna stillingu. Vegna líflátshótanna í kjölfarið fylgja honum enn lífverðir frá dönsku leyniþjónustunni. Meira að segja jólasveinninn kemst ekki nálægt honum.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira