Líkir því að vera skotinn með rafbyssu við pyntingar 18. desember 2007 22:57 Lögreglan á Íslandi íhugar að taka til prófunar rafbyssur líkar þeim sem notaðar eru í Englandi.
Lögreglan í Englandi rannsakar nú ásakanir 45 ára karlmanns þar í landi sem segist hafa orðið fyrir tilefnislausri árás lögreglumanna sem hann segir hafa skotið sig með rafbyssu þar til hann missti þvag. Dagblaðið Guardian sagði frá málinu í dag. Lögreglan í London hefur staðfest að lögreglumenn hafi notast við rafbyssu þegar þeir höfðu afskipti af manninum, Daniel Sylvester, fyrir skömmu. Sylvester sagði við Guardian dagblaðið að lögreglumennirnir hafi stöðvað bíl hans og beðið hann um að stíga út. Eftir að hann gerði það segir hann að einn lögregluþjónninn hafi án viðvörunar skotið sig í hnakkann með rafbyssu. Skyndilega hafi hann verið skotin aftur þannig að hann féll í jörðina og braut í sér tönn. Fimm rafbyssuskotum síðar hafði Sylvester misst mikið þvag og lá máttlaus í jörðinni. Hann segir að þá fyrst hafi lögreglumennirnir leitað í bíl sínum, fundið ekkert og því haft sig á brott. Lögregla vill að svo stöddu ekkert tjá sig um mál Daniel Sylvester. Talsmaður hennar segir að höfð hafi verið afskipti af honum vegna átaks sem nú er í gangi í landinu til að uppræta ólögleg vopn. Sylvester, sem á og rekur öryggisfyrirtæki, var ekki með nein vopn í bílnum sínum þegar hann var stöðvaður. Í viðtali sínu við Guardian sagði hann: Ég spurði hvað væri eiginlega á seyði, hvers vegna væri verið að stoppa mig. Um leið og ég steig út úr bílnum fann ég svo eitthvað snerta hnakkann á mér. Við það féll ég um leið í jörðina. Þetta var líkt og að vera pyntaður.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Fleiri fréttir Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Sjá meira