Gefa út skástu lögin sín 29. júní 2007 08:00 rallararnir í Hvannadalsbræðrum hafa gefið út plötuna Skást of.
Hvanndalsbræður frá Akureyri hafa gefið út plötuna Skást of, sem hefur að geyma skástu lög sveitarinnar hingað til. Á meðal laga á plötunni eru Svarfdælskir bændur, Upp í sveit, Kisuklessa, Tíu litlir negrastrákar og Maístjarnan. Lögin, sem eru sextán talsins, eru tekin af plötum þeirra Ríða feitum hesti, Út úr kú og Hrútleiðinlegir. „Við vorum búnir að gefa út þrjár plötur sjálfir og þær voru bara gefnar út í takmörkuðu upplagi. Þær seldust mjög hratt og voru uppseldar á hálfum mánuði. Það var mikil eftirspurn eftir þeim áfram en við nenntum ekki að standa í frekari útgáfu þannig að ég setti mig í samband við Senu og þeir höfðu áhuga á að gefa þessa plötu út,“ segir Sumarliði Hvanndal. Hvanndalsbræður eru á leið í sjö daga tónleikaferð um Norðurland sem hefst í Dalvík í kvöld. Um miðjan júlí halda þeir síðan tónleika í Reykjavík. „Ég held að Reykvíkingar fatti okkur ekki því við erum hálfgerðir sveitagaurar. Þetta verður síðasti sjénsinn fyrir þá að fatta okkur. Ef þeir gera það ekki þá komum við ekkert aftur.“
Mest lesið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira