Risastór marglyttutorfa eyðilagði laxeldisstöð 22. nóvember 2007 06:43
Innrás risastórrar torfu af marglyttum hefur þurrkað út eina laxeldi Norður-Írlands en marglytturnar drápu yfir 100.000 laxa í sjóeldiskvíum undan strönd landsins. Milljarðar af marglyttum flutu inn í sjókvíarnar sem staðsettar voru um mílu undan strönd Glenarm flóa í Írlandshafi og drápu allt sem þar var að finna. Starfsmenn kvíanna reyndu að bjarga laxinum en tókst ekki að komast nógu fljótt í gegnum þykka breiðuna af marglyttunum sem mældist 16 km á breidd og yfir 10 metra djúp. Marglytturnar eru af tegundinni Mauve Stingers og hafa ekki sést áður á þessum slóðum. Forstjóri eldisins segir að hann hafi aldrei séð nokkuð þessu líkt á 30 ára ferli sínum í laxeldi. Tjónið nemur hátt á annað hundrað milljónir króna en írsk stjórnvöld segja að þau muni aðstoða við að koma eldisstöðinni á laggirnar á ný. Talið er að það verk muni taka um tvö ár. Eldisstöð þessi er mjög þekkt á alþjóðavísu. Meðal þeirra sem neytt hafa laxsins úr eldinu var Elísabet bretlandsdrottning en laxinn var á matseðlinum á áttræðisafmæli drottningarinnar. Rannsóknir víða um heim hafa sýnt að eftir því sem fiskistofnar minnka fjölgar marglyttum þar sem hrogn marglyttna eru fæða fyrir minni fisktegundir. Er nú svo komið að undan ströndum Vestur-Afríku er orðið ómögulegt að stunda fiskeldi sökum ágangs marglyttna.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Fleiri fréttir Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Sjá meira