YouTube hótun á skóla í Noregi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 19. nóvember 2007 15:42 Hótunin er svipuð þeirri sem morðinginn í Tuusula setti á YouTube áður en hann lét til skarar skríða. MYND/AFP
Einn er í haldi lögreglunnar í Noregi eftir hótanir á YouTube gegn framhaldsskóla nálægt Bergen. Hinn grunaði var handtekinn eftir að hótanir gegn Erdal Skólanum á Askøy eyju voru birtar á vefnum. Odd Dale lögreglustjóri sagði að fylgst hefði verið með manninum frá því í gær en hann hefur ekki verið nafngreindur. Dale sagði að kona í Englandi hefði fundið myndbrotið af skólanum í Askøy ásamt hótun með dagsetningunni 19. nóvember. Myndbrotið var með enskum texta og tengdist umfjöllun skotárásarinnar í finnskum skóla sem kostaði átta manns lífið 7. nóvember síðastliðinn. Myndbrotið var sett á YouTube síðasta fimmtudagskvöld. Endurnýjuð útgáfa var síðan birt á föstudag. Með henni var lag John Lennon „Working class hero." Allir nemendur Askøy skólans fóru í gegnum vopnaleit í morgun en þeir eru um 280. Leiv Jan Nielsen skólastjóri sagði yfirvöld taka hótunina alvarlega; „ekki síst í ljósi atburðanna í Finnlandi." Yfirvöld íhuguðu að loka skólanum í dag, en ákváðu að öruggt væri að halda starfseminni áfram með varúðarráðstöfunum. Nielsen hefur óskað eftir að nemendur láti vita ef þeir hafi einhverja vitneskju um málið.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira