Íbúar Kosovo varaðir við sjálfstæði Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 19. nóvember 2007 16:25
Utanríkisráðherrar nokkurra Evrópusambandsríkja hafa hvatt Kosovo-Albana til að lýsa ekki yfir einhliða sjálfstæði eftir kosningar á laugardaginn. Sjálfstæði án stuðnings alþjóðasamfélagsins gæti einangrað héraðið að mati þeirra. Talið er að stjórnmálaflokkur undir forystu Hashim Thaci, fyrrum albansks uppreisnarmanns, muni vinna kosninguna, sem var sniðgengin af serbneska minnihlutanum. Flokkur hans miðar að því að lýsa yfir sjálfstæði frá Serbíu eftir 10. desember. Það er sú dagsetning sem Sameinuðu þjóðirnar settu sem lokafrest samkomulags á milli Albana og Serba. Kosovo var áður hluti af Serbíu en hefur verið stjórnað af Sameinuðu þjóðunum frá árinu 1999 þegar Nato hrakti serbneska herinn frá héraðinu. Albanar hafa lýst yfir vilja til sjálfstæðis og eru um 90 prósent íbúa í Kosovo þar sem um tvær milljónir manns búa. Serbar eru hins vegar alfarið á móti áformunum og hlýddu kalli ríkisstjórnar Serbíu um að sniðganga kosningarnar. Evrópusambandið sem telur 27 þjóðir er klofið í afstöðu sinni til sjálfstæðis Kosovo, en Bandaríkjamenn styðja áformin.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira