Dómarar vísa endurkjörsmáli Musharrafs frá 19. nóvember 2007 11:22 Pakistanskir blaðamenn mótmæla ákvörðun stjórnvalda um að loka tveimur einkareknum sjónvarpsstöðvum. MYND/AFP
Hæstiréttur Pakistan hefur vísað frá fimm af sex efaatriðum um lögmæti endurkjörs Pervez Musharrafs forseta í síðasta mánuði. Rétturinn er nú settur dómurum sem eru vilhallir undir forsetann eftir að hann setti á neyðarlög í landinu. Musharraf hefur sagt að hann muni hætta sem herforingi og verða borgaralegur forseti eftir að lögmæti kosninganna verði viðurkennt. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur af stjórnarandstöðu og Vesturlöndum fyrir að taka sér einræðisvald og setja neyðarlög. Tíu dómarar tóku afstöðu til fimm helstu ásakananna gegn rétti Musharrafs til að keppa um forsetastólinn á meðan hann gegnir enn stöðu herforingja. Sjötti og síðasti liður málsins verður til umfjöllunar fyrir réttinum á fimmtudag. Helsta ástæða þess að Musharraf greip til þess að setja á herlög í landinu er sú að hann óttaðist að Hæstiréttur myndi ógilda endurkjör hans. Hlutabréfamarkaður í Karachi féll um meira en 350 stig eftir ákvörðun Hæstaréttar í dag og er enn fimm prósent fyrir neðan það sem var áður en neyðarlögin voru sett á. Dómarar vöruðu lögmenn við á meðan málið var tekið fyrir í dag. Þeir sögðu þá geta átt á hættu að verða ákærðir um að vanvirða réttinn og jafnvel sviptingu réttinda ef þeir héldu áfram að ögra lögmæti endurkjörs Musharrafs.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Erlent Fleiri fréttir Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Sjá meira