Man. Utd. heldur sínu striki 4. nóvember 2006 17:10 Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu fyrir Man. Utd. í dag. MYND/Getty
Manchester United heldur sínu striki í ensku úrvalsdeildinni og er nú komið með 28 stig á toppi deildarinnar eftir sannfærandi 3-0 sigur á Portsmouth á Old Trafford í dag. Liverpool sigraði Reading, 2-0, en Bolton tapaði óvænt á heimavelli fyrir Wigan. Rétt eins og í leiknum gegn Bolton um síðustu helgi gengu leikmenn Man. Utd. frá andstæðingum sínum strax í upphafi leiks og eftir aðeins 10 mínútna leik gegn Portsmouth í dag var liðið komið með 2-0 forystu. Louis Saha skoraði úr vítaspyrnu á 4. mínútu en Cristiano Ronaldo skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu sex mínútum síðar. Varnarmaðurinn Nemjana Visic bætti síðan við þriðja markinu í síðari hálfleik. Eins og áður segir er Man. Utd. með 28 stig en Chelsea kemur næst með 25 stig en á leik til góða gegn Tottenham á morgun. Spútniklið Bolton missti af dýrmætu tækifæri til að halda í við stórliðin tvö en liðið er með 20 stig í 3. sæti eftir 0-1 tap á heimavelli fyrir Wigan. Það var Lee McCullogh sem skoraði mark Wigan. Liverpool er komið upp í 7. sæti deildarinnar eftir 2-0 sigur á Reading. Það var hollenski framherjinn Dirk Kuyt sem skoraði bæði mörkin í sitthvornum hálfleiknum. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading en Brynjar Björn Gunnarsson fór af velli þegar 10 mínútur voru eftir. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Charlton þegar liðið vann gríðarlega mikilvægan sigur á Mancester City á heimavelli sínum, 1-0. Sigurinn lyftir liðinu úr botnsæti deildarinnar en Hermann og félagar eru nú komnir með átta stig. Þá vann Watford góðan sigur á Middlesbrough og fyrr í dag hafði Fulham borið sigurorð af Everton á heimavelli sínum, 1-0.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira