Af sápu, sandi og svínaríi 2. ágúst 2006 16:00 Haraldur þór Egilsson sagnfræðingur Hreinlætisvenjur forfeðranna koma nútímamanninum spánskt fyrir sjónir. MYND/Heiða
Nútímamanninum finnst sjálfsagt að þrífa sig og sitt nánasta umhverfi enda erum við mörg býsna upptekin af útlitinu. Forfeðurnir voru ekki jafn hégómlegir þegar kom að líkamslykt og böðum. Sagnfræðingurinn Haraldur Þór Egilsson starfar á Minjasafni Akureyrar en hann flytur erindi á kvöldvöku í Laufási í Eyjafjarðarsveit annað kvöld þar sem hann ræðir um persónulegt hreinlæti og húsakost forfeðranna og er þar af nógu að taka. Þetta er mjög skemmtilegt efni því í dag lítum við á hreinlæti sem sjálfsagðan hlut. Ég rakst á grein í Morgunblaðinu frá árinu 1925 en þar var þess getið að fólk þyrfti að fara oftar í bað og að þess yrði ekki langt að bíða að fólk færi að þrífa sig í hverri viku, segir hann. Haraldur Þór hefur meðal annars ferðast milli bekkja á unglingastigi og rætt við ungmenni um búksiði á 19. öld. Á unglingsaldri erum við dálítið upptekin af útlitinu en það er margt við hreinlætisvenjur forfeðra okkar sem kemur á óvart. Við myndum til dæmis ekki láta bjóða okkur að skipta um nærbuxur á hálfsmánaðarfresti eða að skipta á rúmunum einu sinni til tvisvar á ári. Að sögn Haraldar má víða finna heimildir um þessi efni. Kvöldvökurnar í Laufási eru haldnar til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili sem safnaði á sínum tíma heimildum um þjóðhætti, trú og siði hérlendis og birti afrakstur rannsókna sinna í höfuðritinu Íslenskir þjóðhættir árið 1934 en þar er að sjálfsögðu fjallað um hreinlætisvenjur. Auk þess má finna heimildir í ævisögum og skrifum erlendra manna sem oftar en ekki blöskraði útgangurinn á eyjaskeggjum enda vorum Íslendingar aftarlega á merinni hvað hreinlætið snerti fram á 20. öld. Óþrifnaðurinn fór ekki í manngreinarálit að sögn Haraldar. Þó maður verði ávallt að taka lýsingum útlendinga með vissum fyrirvara því þeir skrifuðu til að skemmta lesendum þá taka margir fram að enginn munur hafi verið á því hvort um var að ræða venjulegan bónda, fyrirmenni eða prest, sama ólyktin mætti þeim þegar bæirnir voru opnaðir og allir voru jafn skítugir í framan. Viðleitni fólks til hreinlætis kemur nútímamanninum spánskt fyrir sjónir og nefnir Haraldur að í þjóðháttaskrá Þjóðminjasafns Íslands séu gefin ýmis kúnstug ráð, til dæmis um hvernig mætti lækna tannverk. Fólki var ráðlagt að setja terpentínu í klút og leggja við verkinn en skuggalegast var það ráð að safna hlandsteini og setja beint í holuna eða við bólguna. Menn mynduðust líka við að gera sápu úr dýrafitu og sóda og síðan var verið að nýta hluti og aðferðir í hreinlætisskyni sem við myndum fremur tengja við óþrifnað eins og að bera sand á gólf. Ég bið nú börnin yfirleitt um að prófa það ekki heima hjá sér enda viljum við ekki setja safnið á hausinn með óvæntum lögsóknum, segir hann og kímir. Sjötta kvöldvaka Minjasafnisns hefst kl. 20.30 annað kvöld en Gamli bærinn í Laufási og veitingasalan í gamla prestshúsinu verður opin til kl. 22.
Menning Mest lesið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Heitur Teitur selur Lífið Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf Fleiri fréttir Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Sjá meira