Fólk má flissa upp úr ljóðabókinni 23. ágúst 2006 15:45 Heiður að vera með í Nýhil Grínistinn og ljóðskáldið Þorsteinn Guðmundsson er á heimavelli þegar kemur að gríni og uppistandi og því kemur ekki á óvart að ljóðin úr nýrri ljóðabók hans, Barkakýli úr tré, eru ekki langt frá uppistandi og gríni. MYND/GVA
Skáldið og grínistinn Þorsteinn Guðmundsson hefur gefið út nýja ljóðabók sem gæti allt eins kallast brandarabók eða nótnabók uppistandara. "Þetta er bara svona hugarflug einmana manns í Þingholtunum. Ég skrifa um það sem ber fyrir augu og gerist í lífi fertugs manns," segir Þorsteinn Guðmundsson um nýju ljóðabókina, Barkakýli úr tré. Umfjöllunarefni bókarinnar er því að miklu leyti daglegt líf og skrítnar hugdettur og segir Þorsteinn að þau ættu því að vera auðveld aflestrar og eiga við marga. "Ljóðin eru að minnsta kosti afskaplega einföld á yfirborðinu, enda eru nokkur ljóðanna það sem margir myndu bara kalla setningar. Ég ætlaði fyrst að kalla þetta ljóð og fyrirsagnir, því sum ljóðanna minna á fyrirsagnir í blöðum eða fyrirsagnir í auglýsingum. Þetta er því bara stutt og laggott," segir Þorsteinn og hlær. Þorsteinn er enginn nýgræðingur í skáldskapnum þótt margir þekki helst til hans sem leikara og uppistandara. "Ég byrjaði að skrifa út úr hallæri þegar ég var atvinnulaus leikari. Þá fór ég að skrifa leikrit sem ég sendi í pósti út á land og reyndi að selja skólum. Svo vatt þetta upp á sig." Hann hefur gefið út þrjár ljóðabækur hjá Eddu, Klór frá árinu 2000, Hundabókina frá 2002 og Fífl dagsins sem gefin var út í hittifyrra, en hefur nú gengið til liðs við Nýhil. "Það er heiður að fá að vera með vegna þess að þetta er kraftmikið fólk og ótrúlegur drifkraftur þarna að baki," segir Þorsteinn spurður um hvaða þýðingu það hafi fyrir hann að vera genginn í raðir Nýhils. "Þau eru að skrifa ljóð með nýja afstöðu. Mín kynslóð og eldri kynslóðir hafa verið uppteknar af því að hugsa hvort ljóðið væri þess virði að gera það, hvort það væri dautt og eitthvað svoleiðis. En þetta fólk er bara að vinna að ljóðlist eins og ekkert sé sjálfsagðara og mér finnst það mjög heilbrigt." Þorsteinn segir þó að lesendur hans megi ekki láta ljóðatitilinn hræða sig frá bókinni. Í henni sé hann að gera það sem honum er tamt og að ljóðin séu alls ekki langt frá því sem hann sé búinn að vera að gera í uppistandi og gríni. "Fólk má ekki láta hræða sig frá bókinni að hún sé kölluð ljóðabók, því það má alveg eins kalla hana brandarabók, nótnabók eða hvað sem er. Bókin er fyrst og fremst fyrir þá sem hafa haft gaman af því sem ég er búinn að vera að gera." Hann segist geta fallist á að ljóðin sín séu að minnsta kosti hálfgert grín. "Fólk flissar upp úr bókinni og ég kann vel við það. Þar er ég á heimavelli," bætir Þorsteinn við. Barkakýli úr tré er kilja í vasabókarbroti og kostar 1.890 kr. Útgefandi bókarinnar er Nýhil og Eiríkur Örn Norðdahl ljóðskáld ritar formála.
Menning Mest lesið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Krummi kveður pabba sinn Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira