Lífið

Skvísuboð í Iðu

Hann er ekki nógu skotinn í þér
Bókin kom út nýverið í íslenskri þýðingu.
Hann er ekki nógu skotinn í þér Bókin kom út nýverið í íslenskri þýðingu.

Í tilefni af komu rithöfundarins Liz Tuccillo ætlar Edda útgáfa að halda heljarinnar konuboð á laugardaginn. Boðið verður haldið í Iðusalnum á Lækjargötu og hefst klukkan 17.00.

Liz Tuccillo er ein af handritshöfundum sjónvarpsþáttanna Beðmál í borginni eða Sex and the City sem er mjög vinsæll meðal kvenþjóðarinnar. Einnig skrifaði hún bókina Hann er ekki nógu skotinn í þér sem er eins konar sjálfshjálparbók fyrir konur og kom nýlega út í íslenskri þýðingu Þóru Sigurðardóttur. Liz er væntanleg til landsins í dag og ætlar að nota tækifærið á laugardaginn og ræða við nokkrara vel valdar einhleypar konur í rannsóknarskyni fyrir næstu bók sína sem nefnist How to be single. Hún á að koma út árið 2007 og verður skáldsaga með sjálfshjálparívafi.

Samkvæmt Rakel Pálsdóttur kynningarstjóra Eddu útgáfu verður þetta algert skvísuboð og er Edda búin að senda út boðskort til margra kvenna sem eru áberandi í þjóðfélaginu um þessar mundir. Á boðslistanum er meðal annars að finna Steinunni Valdísi fyrrverandi borgarstjóri, Ragnheiði Guðfinnu sjónvarpskonu, Andreu Róberts hjá Concert, Kolbrúnu Bergþórsdóttur blaðakonu og Katrínu Júlíusdóttur alþingiskonu. Þá er einnig búið að bjóða öllum alþingiskonum, öllum kvenkyns borgarfulltrúum og fjölmiðlakonum.

Liz ætlar að nýta tækifærið og mun leiða einhverskonar umræður í boðinu. Hún ætlar að reyna fá sem besta sýn á hvernig það er að vera kona á Íslandi á skemmtilegan hátt í alvöru sumarpartíi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.