Ívar og Brynjar framlengja við Reading 13. nóvember 2006 18:00 NordicPhotos/GettyImages
Íslensku landsliðsmennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa framlengt samninga sína við enska úrvalsdeildarfélagið Reading. Ívar framlengdi samning sinn við félagið til ársins 2009 og Brynjar Björn til ársins 2008. Ívar hefur verið 142 sinnum í byrjunarliði Reading síðan hann gekk í raðir félagsins frá Wolves árið 2003 og hefur skorað 8 mörk á þeim tíma. Bryjar Björn gekk í raðir Reading árið 2005 eftir að hafa verið hjá Watford. Nick Hammond, yfirmaður knattspyrnumála hjá Reading, var ánægður að tryggja félaginu undirskrift íslensku leikmannanna. "Ívar og Brynjar eru báðir atvinnumenn fram í fingurgóma og eru menn sem endurspegla allt sem Reading stendur fyrir á knattspyrnuvellinum. Þeir hafa látið mikið að sér kveða síðan þeir komu hingað og við hjá Reading erum í skýjunum yfir því að þeir hafi ákveðið að skrifa undir nýja samninga. "Þessi samningur sýnir mér að félagið hefur trú á mér og ég er þakklátur fyrir það - því ég held að ég hafi það sem til þarf til að spila í ensku úrvalsdeildinni," sagði Ívar í samtali við heimasíðu Reading og Brynjar Björn tók í sama streng. "Ég er mjög ánægður með að fá nýjan samning og hlakka til þess að spila með liðinu í eitt og hálft ár í viðbót. Við erum enn að bæta okkur frá síðustu leiktíð og við sýndum það í leiknum gegn Tottenham um síðustu helgi að við getum keppt við þá bestu í þessari deild," sagði Brynjar Björn.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira