Lífið

Tónafljóð í Listasafni Sigurjóns

Tónafljóðin leika í Sigurjónssafni pg frumflytja nýtt verk eftir Þóru Marteinsdóttur.
Tónafljóðin leika í Sigurjónssafni pg frumflytja nýtt verk eftir Þóru Marteinsdóttur.

Tónlistarhópurinn Tónafljóð leikur í sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í kvöld og frumflytur meðal annars nýtt verk eftir Þóru Marteinsdóttur.

Tríóið Tónafljóð skipa Þórunn Elín Pétursdóttir sópransöngkona, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Sigrún Erla Egilsdóttir sellóleikari en tríóið stofnuðu þær í tengslum við tónleika á Menningarnótt í fyrra.

Fljóðin munu flytja fjölbreytta dagskrá sönglaga og annarra tónverka eftir íslensk og erlend tónskáld, þar á meðal verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Snorra Sigfús Birgisson, Hafliða Argrímsson og Betty Roe.

Hápunktur tónleikanna verður síðan frumflutningur á tónverkinu Þulu eftir Þóru Marteinsdóttur, útskýrir Hafdís en það samdi tónskáldið sérstaklega fyrir hópinn. Verkið er samið við þuluna þjóðþekktu Tunglið, tunglið taktu mig eftir Theodóru Thoroddsen en Hafdís segir verkið hafa talsvert þjóðlegan blæ.

Þær stöllur hyggja síðan á frekari landvinninga og halda tónleika í Stykkishólmskirkju næstkomandi fimmtudagskvöld og í Duus-húsum í Reykjanesbæ 2. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.