Rússar vilja fagleg vinnubrögð í þyrlukaupum LHG 22. ágúst 2006 18:46
Victor I. Tatarintsjev, sendiherra Rússlands, staðfestir að hann hafi ekkert svar fengið frá íslenskum yfirvöldum við margítrekuðu boði um að kynna rússneskar björgunarþyrlur sem valkost fyrir Landhelgisgæsluna. Fullbúnar björgunarþyrlur frá Rússlandi kosta innan við fjórðung af verði sambærilegra vestrænna þyrlna. Rússar telja sig hafa fengið snautleg viðbrögð við tilraunum sínum til að kynna eigin þyrluframleiðslu í tilefni af þeirri ætlan íslendinga að kaupa hingað að minsta kosti þrjár stórar björgunarþyrlur. Eins og við griendum frá í fréttum í gærkvöld hefur margítrekuðu boði um að fá að kynna björgunarþyrlur af gerðinni MI 172 aldrei verið svarað. Liggur þó fyrir að þrjár vestrænar þyrlur kosta yfir sex milljarða króna. Þrjár rússneskar björgunarþyrlur kosta innan við milljarð og að mati kunnugra ekki meira en einn og hálfan milljarð með öllum aukabúnaði. Victor Tatarintsjev, sendiherra rússa staðfestir fálæti íslenskra stjórnvalda gagnvart þessum valkosti. Erindi hafi fyrst verið sent í apríl um að fara að skoða þessar þyrlur en ekkert svar hafi enn borist. Senidherrann segist í sjálfu sér ekki vera hissa á þessu svarleysi, hann geti gert sér í hugarlund hvað búi að baki en vill ekki fara nánar útí þá sálma. NFS hefur verið bent á það að rússneskar þyrlur hafi ekki vottun Evrópskra flugmálayfirvalda - miðað við þær kröfur sem gerðar eru séu einungis tvær tegundir sem hafi þessa vottun. Super Puman eins og sú sem Gæslan á nú - og Sikorsky þyrlur frá Ameríku, eins og þær sem verið hafa við björgunarstörf hjá varnarliðinu. Á heimasíðu framleiðenda rússnesku þyrlnanna kemur fram að unnið sé að því að fá vestræna vottun á þyrlurnar. Sendiherrann segist ekki þekkja þessa hlið mála en bendir á að MI 172 hafi verið seldar til Grikklands og Tékklands til borgaralegra verkefna. Það segi sína sögu. Erfitt er að nálgast fagþekkingu innanlands til að bera saman þyrlukauoavalkostina. Benóný Ægisson, yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar sagðist ekki þekkja nægjanlega vel til þessara rússnesku þyrlna til að geta metið þætti er snúi að viðhaldi og rekstri. Sagði hann þó að flugeðlisfræðilega séu þetta mjög sniðugar vélar, enda standi rússar almennt framarlega á því sviði. NFS sendi fyrirspurn til Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra vegna þessa máls - en hann er yfirmaður Landdhelgisgæslunnar - og var spurt hvort þessi rússaþyrluvalkostur yrði skoðaður. Segir Björn í skriflegu svari að ætlunin sé að leita tilboða vegna þyrlukaupanna - ef til vill í samvinnu við norðmenn. Segir Björn svo að ferðir til að skoða einstakar tegundir kunni að verða farnar síðar. NFS hefur reynt að fá skýringar frá utanríkisráðuneytinu á því að erindum rússneska sendiherrans var ekki svarað. Vísað var á aðstoðarmann ráðherra sem hefur ekki svarða ítrekuðum skilaboðum.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira