Innlent

Rússar vilja fagleg vinnubrögð í þyrlukaupum LHG



Victor I. Tatarintsjev, sendiherra Rússlands, staðfestir að hann hafi ekkert svar fengið frá íslenskum yfirvöldum við margítrekuðu boði um að kynna rússneskar björgunarþyrlur sem valkost fyrir Landhelgisgæsluna. Fullbúnar björgunarþyrlur frá Rússlandi kosta innan við fjórðung af verði sambærilegra vestrænna þyrlna.

Rússar telja sig hafa fengið snautleg viðbrögð við tilraunum sínum til að kynna eigin þyrluframleiðslu í tilefni af þeirri ætlan íslendinga að kaupa hingað að minsta kosti þrjár stórar björgunarþyrlur. Eins og við griendum frá í fréttum í gærkvöld hefur margítrekuðu boði um að fá að kynna björgunarþyrlur af gerðinni MI 172 aldrei verið svarað. Liggur þó fyrir að þrjár vestrænar þyrlur kosta yfir sex milljarða króna. Þrjár rússneskar björgunarþyrlur kosta innan við milljarð og að mati kunnugra ekki meira en einn og hálfan milljarð með öllum aukabúnaði.

Victor Tatarintsjev, sendiherra rússa staðfestir fálæti íslenskra stjórnvalda gagnvart þessum valkosti. Erindi hafi fyrst verið sent í apríl um að fara að skoða þessar þyrlur en ekkert svar hafi enn borist. Senidherrann segist í sjálfu sér ekki vera hissa á þessu svarleysi, hann geti gert sér í hugarlund hvað búi að baki en vill ekki fara nánar útí þá sálma.

NFS hefur verið bent á það að rússneskar þyrlur hafi ekki vottun Evrópskra flugmálayfirvalda - miðað við þær kröfur sem gerðar eru séu einungis tvær tegundir sem hafi þessa vottun. Super Puman eins og sú sem Gæslan á nú - og Sikorsky þyrlur frá Ameríku, eins og þær sem verið hafa við björgunarstörf hjá varnarliðinu. Á heimasíðu framleiðenda rússnesku þyrlnanna kemur fram að unnið sé að því að fá vestræna vottun á þyrlurnar. Sendiherrann segist ekki þekkja þessa hlið mála en bendir á að MI 172 hafi verið seldar til Grikklands og Tékklands til borgaralegra verkefna. Það segi sína sögu.



Erfitt er að nálgast fagþekkingu innanlands til að bera saman þyrlukauoavalkostina. Benóný Ægisson, yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar sagðist ekki þekkja nægjanlega vel til þessara rússnesku þyrlna til að geta metið þætti er snúi að viðhaldi og rekstri. Sagði hann þó að flugeðlisfræðilega séu þetta mjög sniðugar vélar, enda standi rússar almennt framarlega á því sviði.

NFS sendi fyrirspurn til Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra vegna þessa máls - en hann er yfirmaður Landdhelgisgæslunnar - og var spurt hvort þessi rússaþyrluvalkostur yrði skoðaður. Segir Björn í skriflegu svari að ætlunin sé að leita tilboða vegna þyrlukaupanna - ef til vill í samvinnu við norðmenn. Segir Björn svo að ferðir til að skoða einstakar tegundir kunni að verða farnar síðar.

NFS hefur reynt að fá skýringar frá utanríkisráðuneytinu á því að erindum rússneska sendiherrans var ekki svarað. Vísað var á aðstoðarmann ráðherra sem hefur ekki svarða ítrekuðum skilaboðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×