Morðgáta á uppdiktuðu Íslandi 22. ágúst 2006 14:45 Margradda spæjarasaga sem gerist á Íslandi Fær góðar viðtökur gagnrýnenda.
Skáldsagan Icelander eftir bandaríska rithöfundinn Dustin Long vekur kátínu og hrifningu hjá gagnrýnendum sínum og lesendum en þessi margraddaða saga gerist í samnefndu en skálduðu landi. Í skrifum um bókina er henni líkt við blöndu af marglaga frásögnum Nabokovs og ærslum Lemony Snicket en einnig er minnst á Agöthu Christie og Da Vinci lykilinn enda er viðfangsefni sögunnar og framsetning hennar með afbrigðum flókin – til dæmis eru þar taldar fimmtíu og þrjár neðamálsgreinar sem eignaðar eru nafnlausum erkisögumanni sem hefur stöðug afskipti af frásögninni og misgagnlegum ábendingum fengnum frá íslenskum slúðurdálkapenna. Aðalpersónan sem aðeins er nefnd "Kvenhetjan okkar" í bókinni er dóttir afbrota- og mannfræðingsins Emilu Bean-Ymirson og íslensks manns að nafni Jon. Þegar vinkona "Kvenhetjunnar", tilgerðarlegi rithöfundurinn Shirley MacGuffin sem kinkar skemmtilega kolli til Hitchcocks, er myrt liggur beinast við að hún taki við arfleifð móður sinnar og leysi gátuna. Nema hvað, snótin hefur lítinn áhuga á því eða eltingarleikjum um íslenska undirheima konungsdæmisins "Vanaheim" eða að flýja undan ómenninu "Refusirkir" og lái henni hver sem vill. Stöðug endurlit í ævi og störf móðurinnar tefja líka lausn gátunnar en þau eru fléttuð inn í söguna gegnum skrif fræðimannsins Magnus Valison sem hefur fært dagbækur móðurinnar í skáldsagnaform. Og ef þetta er ekki nógu flókið fyrir þá blanda tveir frumspekilegir einkaspæjarar sér í leikinn, útsmoginn bókavörður og týndur hundur sem fjölgar sér mjög hratt. Þetta er fyrsta bók höfundarins sem heldur úti síðu á vefheimilinu MySpace en þar upplýsir hann um áhuga sinn á norrænni goðafræði, ævintýrum og karókí. Hann kveðst hafa hlustað á The Smiths, Kraftwerk og Can á meðan hann samdi bókina en í ítarlegum lista hans yfir tónlist og bækur sem hafði áhrif á sköpun sögunnar er engar íslenskar heimildir að finna. Bókin kemur út hjá forlaginu McSweeney's en höfundurinn hefur einnig haft fyrir því að setja upp heimasíðuna www.emilybean.com sem heitir í höfuð spæjaramóðurinnar. Hún virðist þó ekki koma sögunni við heldur vera einskær uppspuni frá rótum þótt þar sé að finna ljósmyndir sem hafa býsna "íslenskt" yfirbragð.
Menning Mest lesið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Kominn á toppinn Lífið Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Lífið samstarf Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Lífið samstarf Fleiri fréttir Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Sjá meira