Stjörnufans á IFF 22. ágúst 2006 12:45 Matt Dillon Hefur leikið í kvikmyndum á borð við Rumble Fish og Crash en hann leikur aðalhlutverkið í Factotum, opnunarmynd IFF.
Stórleikararnir Matt Dillon og Marisa Tomei eru væntanleg hingað til lands í næstu viku á vegum IFF - kvikmyndahátíðarinnar sem hefst 30. ágúst. Hollywood-stjörnurnar verða viðstaddar frumsýningu kvikmyndarinnar Factotum sem þau leika bæði í en þetta verður opnunarmynd hátíðarinnar. Leikstjórinn Bent Hamer mun einnig koma til landsins auk framleiðanda myndarinnar, Íslands-vinarins Jim Stark, en hann framleiddi Á köldum klaka eftir Friðrik Þór Friðriksson. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ætla þau Dillon og Tomei að dveljast fram yfir helgi hér á landi og verður þeim væntanlega boðið á Bessastaði eins og öllum öðrum stórstjörnum sem hingað koma í "opinberum" erindagjörðum. Factotum er byggð á samnefndri sögu hins heimsþekkta rithöfundar Charles Bukowski en aðalpersóna myndarinnar, Hank Chinaski, er lauslega byggð á ævi skáldsins. Chinaski er að reyna lifa af með því að vinna hin ýmsu skítastörf svo lengi sem þau trufla ekki hans einu sönnu köllun, ljóða- og sagnaskrif. Á sama tíma þarf hann að berjast við annars konar truflanir í formi kvenna, drykkju og veðmála. Matt Dillon hefur lengi verið einn virtasti leikari Hollywood og á að baki kvikmyndir eins og The Outsiders, Rumble Fish og Crash en hann hlaut Óskarstilnefningu fyrir hlutverk sitt í síðastnefndu myndinni. Marisa Tomei fékk Óskarinn fyrir leik sinn í kvikmyndinni My Cousin Vinny og hefur leikið í myndum á borð við Chaplin, The Paper og Welcome to Sarajevo.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Pattra með pæju-padelmót Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira