Yfir hundrað milljarðar í framkvæmdir á næstunni 1. júlí 2006 18:42
Ríkisstórnin samþykkti í vikunni að taka ábyrg niðuskurðar- og aðhaldsskref í kjölfar samkomulags við aðila vinnumarkaðarins í þeim tilgangi að kveða niður verðbólgudrauginn illræmda. Ríkisstjórnin ætlar að draga saman framkvæmdir á næsta ári um sem nemur tveimur til þremur milljörðum króna. Ríkið ætlar hins vegar að fjárfesta fyrir um þrettán milljarða króna í ár, tæpa 23 milljarða næsta ár og nærri 30 milljarða 2008. Að auki verður fljótlega farið að eyða símamilljörðunum 67. Fimm af þessum milljörðum byrja að streyma út úr sjóðum ríkisins strax eftir áramót og fara í varðskip, flugvélar, hátæknisjúkrahús, vegi, brýr og fleira smálegt. En aftur nær í tíma. 23.000 fermetra Tónlistar- og ráðstefnumiðstöð við Reykjavíkurhöfn á að vera tilbúin eftir þrjú ár. Þetta framkvæmd upp á 12,5 milljarð króna og er samvinnuverkefni ríkis, borgar og einkaaðila, . Við Austurhöfn munu einnig rísa íbúðir, hótel, verslanir og síðast en ekki síst nýjar höfuðstöðvar Landsbankans. Alls verða þetta um 80.000 fermetrar og heili pakkinn gæti kostað 50 til 60 milljarða króna sem læða sér í rólegheitum inn í hagkerfið á næstu árum. En aftur að opinberum framkvæmdum. Eftir helgina hefjast framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng, en þau munu kosta eina sjö milljarða króna. Tvö til þrefaldur verðbólgu-draugs-niðurkvaðninga-sparnaðar ríkisstórnarinnar. Á næsta ári fara hins vegar ekki nema litlar 200 milljónir í undirbúning að Hátæknisjúkrahúsi við Hringbraut, en síðan er reiknað með að skriður komist á málið undir forystu Alfreðs Þorsteinssonar. Heildarpakkinn verði upp á 35 til 40 milljaraða króna. Um það bil 15 til 20 sinnum það sem ríkisstjórnin ætlar að spara. Þeir flokkar sem mynda meirihluta í Reykjavíkurborg hafa lofað Sundabraut, -og það heldur fyrr en seinna í anda framkvæmdastjórnmála. Pakki sem gæti kostað 15 milljarða. 5 til 7 sinnum það sem á að spara. Fyrir utan það sem kalla má venjulegar framkvæmdir ríkisins upp á nokkra milljarðará ári, fara samanlagt um fjörtíu milljarðar í sérstakar framkvæmdir. Fyrir utan það sem sveitarfélaög og einkaaðilar gera. Ríkið ætlar að draga úr framkvæmdum sem nemur 2 til 3 milljörðum á næsta ári. Þannig má drepa verðbólgudraugsa og veislan heldur áfram.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira