Fannst hann vera snuðaður og reiddist 1. júlí 2006 07:15 Kassakvittunin Erlendur keypti Voltaren Rapid, samkvæmt lyfseðli, í Lyfjum og heilsu í Salahverfi í Kópavogi. Lyfið kostaði þar 3.845 krónur 50 milligrömm, 100 stykki.
Lyfjaverð Þegar umræðan um verðkönnun ASÍ byrjaði varð ég reiður og fannst ég hafa verið snuðaður. Ég hefði getað sparað mér tæpar 1.500 krónur ef ég hefði farið í Garðs Apótek í stað Lyfja og heilsu, eða um 40 prósent, segir Erlendur S. Þorsteinsson, reiknifræðingur og íbúi í Kópavogi. Erlendur hafði ekki orðið slæmur í bakinu frá 1998 þegar hann fékk slæmt kast miðvikudaginn 7. júní. Daginn eftir fór hann til læknis á Salastöð og fékk lyfseðil. Ég fór í Lyf og heilsu í sama húsi og fékk lyfseðilinn afgreiddan. Ekki var minnst aukateknu orði á að til væri ódýrara samheitalyf, Vostar S, ekkert fremur en að starfsmenn Lyfja og heilsu í Hamraborg buðu starfsmönnum ASÍ samheitalyf fyrir Voltaren Rapid í verðkönnun 13. júní, segir Erlendur. Könnun ASÍ sýndi að verðmunur á frumlyfi og samheitalyfi með sömu verkun var allt að 69 prósent og að lyfjafræðingar sinntu ekki nógu vel þeirri skyldu sinni að benda á ódýrari samheitalyf. Erlendur reiknaði út að hann hefði getað sparað sér 1.500 krónur og fyrir þann pening er til dæmis hægt að kaupa fimm kaffibolla á kaffihúsi eða fara tvisvar í bíó. Erlendur hefur geymt kvittunina en ekki haft samband við Lyf og heilsu. Það eru bara orð gegn orði, segir hann og mótmælir harðlega ummælum Hjalta Sölvasonar, framkvæmdastjóra Lyfja og heilsu, í Fréttablaðinu í vikunni. Erlendur telur að lyfjafræðingar standi sig alls ekki nógu vel við að benda á samheitalyf og nefnir annað dæmi máli sínu til stuðnings. Nákominn ættingi hans hefur þurft að kaupa kólesteróllækkandi lyf reglulega. Eftir könnun ASÍ var henni boðið ódýrara samheitalyf í fyrsta skipti. Það er miður ef svona hefur gerst, segir Hjalti Sölvason, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu. Við höfum átt viðræður við alla okkar leyfishafa sem stjórna okkar apótekum og brýnt fyrir þeim að bjóða samheitalyf. Við munum brýna það enn frekar fyrir þeim. Þessi umræða gerir það að verkum að viðskiptavinirnir verða enn meðvitaðri um þá valkosti sem þeir hafa í samheitalyfjum.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira