Vilja draga menn til ábyrgðar 9. júlí 2006 18:39
Avion fyrirtækið viðurkennir að ekki hafi verið fylgt góðum reikningsskilavenjum við bókfærslu á reikningi dótturfyrirtækis þess upp á milljarð króna síðasta sumar. Í yfirlýsingu frá Avion segir að stjórnendur dótturfyrirtækisins verði dregnir til ábyrgðar.Eins og NFS greindi frá á föstudag snýst málið um viðskipti á milli Excel flugfélagsins, dótturfyrirtækis Avion, og breska fyrirtækisins Alpha Airports sem sér meðal annars um matarþjónstu við flufélög. Hefur verið látið að því liggja að reikningsfærslum uppá jafnvirði milljarðs króna hafi verið hagrætt þannig að heildarreikningar Avion sýndu betri stöðu en ella þegar félagið fór í hlutafjárútboð undir lok síðasta árs. Nú hefur Avion sent frá sér yfirlýsingu til að skýra málið. Fram kemur þar að Excel hafi ætlað að rifta samningum við Alpha en þjónustufyrirtækið boðið að ef langtímasamningur yrði gerður fengi Excel fyrirframgreiddan afslátt. Virðist þessi afsláttur - í formi kreditnótu uppá ígildi milljarðs króna - verið tekjufærður í heild sinni á uppgjörsári 2005 sem lauk síðasta haust. Avion viðurkennir nú að þarna hafi ekki verið rétt staðið að málum - góðum reikningsskilavenjum hafi ekki verið fylgt. Réttara hefði verið að tekjufæra þennan afslátt jafnóðum á næstu árum á móti samningsbundnum útgjöldum. Búið er að leiðrétta ársuppgjör ársins 2005 með því að færa tekjurnar niður. Málið hefur valdið miklum usla hjá Alpha Airports í Bretlandi. Bréf félagsins voru tekin af markaði í vor og æðstu stjórnendur hafa tekið pokann sinn. Í yfirlýsingu Avion Group í dag er vísað til þeirra stjórnenda hjá Excel sem báru ábyrgð á þessum mistökum og sagt orðrétt: "Viðkomandi stjórnendur verða dregnir til ábyrgðar". - það er ekki nánar skýrt.
Fréttir Innlent Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fleiri fréttir Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sjá meira