Fótbolti

Auðvelt hjá Tottenham

Jermain Defoe var í stuði í kvöld
Jermain Defoe var í stuði í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Tottenham tryggði sér í kvöld efsta sætið í riðli sínum í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið vann auðveldan sigur á Dinamo Búkarest frá Rúmeníu 3-1. Jermain Defoe skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Dimitar Berbatov eitt, en gestirnir náðu að minnka muninn í lokin þó leikurinn hafi verið eign heimamanna frá fyrstu mínútu.

Glasgow Rangers tryggði sér sömuleiðis sigur í A-riðli með 1-0 sigur á Partizan, Tottenham vann B-riðilinn örugglega, Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar sigruðu í C-riðli með því að leggja Sevilla að velli 2-1 á Spáni, en Grétar Rafn þurfti reyndar að fara meiddur af velli í kvöld. Loks vann Parma sigur í D-riðli þrátt fyrir 3-0 tap fyrir Osasuna í kvöld.

Á morgun verður dregið í 32-liða úrslit keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×