Fótbolti

Newcastle og Blackburn áfram

Sibierski fagnar marki sínu í kvöld
Sibierski fagnar marki sínu í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Ensku úrvalsdeildarliðin Newcastle og Blackburn tryggðu sér bæði sæti í 32-liða úrslitum Evrópumóts félagsliða í kvöld. Newcastle sigraði spænska liðið Celta Vigo 2-1 á heimavelli með mörkum Antoine Sibierski og Steven Taylor eftir að spænska liðið hafði náð forystu í leiknum. Blackburn gerði markalaust jafntefli við hollenska liðið Feyenoord á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×